Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-2/2023 · Forsætisráðuneytið

Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu 2023-2026

Aðgerðirnar eru margvíslegar og miða allar að því að bæta stöðu og réttindi fólks sem eru í viðkvæmri stöðu fyrir að verða fyrir hatursorðræðu til hagsbóta fyrir samfélagið allt.

Drögin að þingsályktuninni voru unnin af starfshópi forsætisráðherra um aðgerðir gegn hatursorðræðu sem skipaður var 16. júní 2022. . Aðgerðirnar eru samtals 22. Aðgerð nr. 3 skiptist í fimm stafliði (3a-3e) en í öllum tilvikum er um að ræða sjálfstæðar aðgerðir með mismunandi ábyrgðaraðilum. Þær aðgerðir sem gerð er tillaga um í aðgerðaáætluninni eru margvíslegar og snerta sumar mörg svið og þar af leiðandi fleira en eitt ráðuneyti, sem og stofnanir, sveitarfélög, hagsmunasamtök o.fl. Níu ráðuneyti taka þátt og bera ábyrgð á því að þeirra aðgerð/ir komist til framkvæmda. Sérstakt mælaborð sem birt verður á sérstöku vefsvæði forsætisráðuneytisins um hatursorðræðu mun sýna fram á framgang einstakra verkefna. Þar sem mikilvægt þótti að auka þekkingu og búa til farveg fyrir málefnalega umræðu gegn hatursorðræðu og fræðast um birtingarmyndir hennar er mikil áhersla lögð á fræðslutengd verkefni í áætluninni sem og vitundarvakningu. Aðrar aðgerðir gera ráð fyrir breytingu á lögum og verklagsreglum, gerð úttektar og könnunar o. fl. Einnig er gert ráð fyrir að sérstakur framkvæmdasjóður vegna verkefna gegn hatursorðræðu verði settur á fót. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, Jafnréttisstofu, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Fjölmenningarsetri, embætti ríkislögreglustjóra, mennta- og barnamálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Jafnframt voru þrír fulltrúar skipaðir af forsætisráðherra án tilnefningar. Víðtækt samráð var haft við hagsmunaaðila við gerð áætlunarinnar. Í september 2022 voru haldnir sérstakir samráðsfundir með fulltrúum á þriðja tug hagsmunasamtaka og sérfræðinga. Auk almennra umræðna var á samráðsfundunum sérstaklega óskað eftir upplýsingum frá samtökunum um hvað að þeirra mati mætti betur fara í málaflokknum og til hvaða aðgerða þau telji að grípa skuli til. Þann 25. október 2022 hélt forsætisráðherra opinn samráðsfund um aðgerðir gegn hatursorðræðu í Hörpu þar sem fólki gafst færi á að fræðast og ræða hugmyndir og aðgerðir til að sporna við hatursorðræðu. Þátttakendur voru um 100 talsins og byggist grunnur aðgerðaáætlunar þessarar á framangreindu samráði við hagsmunaaðila.

S-2/2023· Drög að stefnu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. jan. 2023 – 22. jan. 2023· 20 umsagnir

Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu 2023-2026

Aðgerðirnar eru margvíslegar og miða allar að því að bæta stöðu og réttindi fólks sem eru í viðkvæmri stöðu fyrir að verða fyrir hatursorðræðu til hagsbóta fyrir samfélagið allt.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-2/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. janúar 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 20 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 795)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. júlí 2024)

Mun fleiri umsagnaraðilar studdu tillöguna en voru á móti og fögnuðu framkomnum tillögum að aðgerðum, sérstaklega áherslunni sem lögð er á fræðslu. Í umsögnum þeirra aðila sem ekki lýstu yfir eindregnum stuðningi við málið kom fram að skilgreiningin á haturs¬orð¬ræðu væri ekki nægilega skýr, að með tillögunni væri vegið að tjáningar- og skoðanafrelsi fólks og að áætlunin væri ekki nægilega fjármögnuð. Einnig var gagnrýnt að ekki væri nægileg áhersla lögð á fötlun og kyn í tillögunni. Sumir gagnrýndu aðgerðirnar sem lúta að fræðslu en aðrir gagnrýndu aftur á móti að fræðslan væri valkvæð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (20)
  • #1Erna Ýr Öldudóttir
    Þar sem að til stendur að skerða stjórnarskrárbundið tjáningar- og skoðanafrelsi borgaranna með þessu frumvarpi þá þurfa að liggja fyrir brýnir almannahagsmunir. Ekki hafa verið færð haldbær rök fyrir því hverjir þeir séu eða af hverju. Til viðbótar hefur ekki verið skilgreint þröngt og nákvæmlega, hvað hatursorðræða sé. Hvorki á Íslandi né alþjóðlega. Þannig fengi opinbert vald allt of víðar og óskýrar heimildir til að skerða grundvallarmannréttindi í landinu. Svo óljósar og víðar heimildir gætu stuðlað að geðþóttaákvörðunum stjórnvalda, með fyrirséðum alvarlegum afleiðingum fyrir borgaran… Lesa alla

    Þar sem að til stendur að skerða stjórnarskrárbundið tjáningar- og skoðanafrelsi borgaranna með þessu frumvarpi þá þurfa að liggja fyrir brýnir almannahagsmunir. Ekki hafa verið færð haldbær rök fyrir því hverjir þeir séu eða af hverju. Til viðbótar hefur ekki verið skilgreint þröngt og nákvæmlega, hvað hatursorðræða sé. Hvorki á Íslandi né alþjóðlega. Þannig fengi opinbert vald allt of víðar og óskýrar heimildir til að skerða grundvallarmannréttindi í landinu. Svo óljósar og víðar heimildir gætu stuðlað að geðþóttaákvörðunum stjórnvalda, með fyrirséðum alvarlegum afleiðingum fyrir borgarana í landinu og niðurrifi á frjálsu lýðræðisþjóðfélagi. Ég óska eftir að þetta mál verði tekið af dagskrá.

  • #2Eldur Smári Kristinsson Ísidór
    Tjáningar-og skoðanafrelsi borgaranna er stjórnarskrárvarin réttindi sem ekki á að hreyfa við. Í stjórnarskrá lýðveldisins segir orðrétt: ,, Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.“ Ég tel forsætisráðherra byrja á röngum enda í vegferð sinni, enda er ekki til nein lögfræðileg skilgreining á hvað hatursorðræða er. Hvað er brýnt fyrir ráðherra að banna? Er það almennur dónaskapur? Orðræða sem getur móðgað fólk? Er það gagnrýni á hugmyndafræði sem einhverjir styðja? Á að setja hömlur á hvernig fólk lýsir hlutlægum raunveruleika um hvað sé upp eða niðu… Lesa alla

    Tjáningar-og skoðanafrelsi borgaranna er stjórnarskrárvarin réttindi sem ekki á að hreyfa við. Í stjórnarskrá lýðveldisins segir orðrétt: ,, Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða.“ Ég tel forsætisráðherra byrja á röngum enda í vegferð sinni, enda er ekki til nein lögfræðileg skilgreining á hvað hatursorðræða er. Hvað er brýnt fyrir ráðherra að banna? Er það almennur dónaskapur? Orðræða sem getur móðgað fólk? Er það gagnrýni á hugmyndafræði sem einhverjir styðja? Á að setja hömlur á hvernig fólk lýsir hlutlægum raunveruleika um hvað sé upp eða niður? Svart eða hvítt? Kona eða karl? Samkynhneigð eða gagnkynhneigð? Sjálfur er ég samkynhneigður karlmaður sem gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að tjáningarfrelsið og skoðanafrelsið sé virt í hvívetna. Réttindabarátta samkynhneigðra hefði ekki getað borið árangur án þess. Þessar aðgerðir eru líklegar til þess að bitna á réttindum samkynhneigðra og annara minnihlutahópa þar sem haturorðræða er í raun óvinsælar skoðanir og tjáning skv. tískustraumum tímans. Þessi fjárútlát og aðgerðir eru ekki í þágu okkar. Þessum fjármunum er betur varið annarsstaðar eins og ráðherra veit. Við erum hinsvegar komin á stað þar sem fylgjendur ákveðinnar hugmyndafræði keppist við að setja múl á samborgara sína svo við getum ekki með góðu móti gagnrýnt hana og lýst raunveruleikanum eins og hann blasir við okkur. Síðast þegar slíkt gerðist í álfunni sem við búum í, endaði það með ósköpum. Þess vegna var ríkisvaldinu settar skorður á tjáningu gegn borgurunum – til að vernda borgaranna. Valdið kemur frá okkur, og ef okkar skoðana-og tjáningarfrelsi er skert, þá er allt lýðræðið undir. Þess vegna hvet ég Alþingi og forsætisráðherra til þess að taka þetta mál af dagskrá.

  • #3UN Women Ísland

    Meðfylgjandi er umsögn UN Women á Íslandi.

  • #4Margrét Steinarsdóttir

    Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu.

  • #5Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-2/2023: Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu 2023-2026 · Alviti