Drög að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027
Í drögum þessum eru settar fram aðgerðir sem byggja á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og viljayfirlýsingu hlutaðeigandi aðila um að auka samstarf varðandi þjónustu í heimahúsi við eldra fólk.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-253/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. janúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 21 umsögn barst
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 860)
- Drög að aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk
- Skýrsla: Þjónusta við aldraða - Árangur fjárveitinga
- Skýrsla: Starfshópur um lífskjör og aðbúnað eldra fólks
- Umræðuskjal: Framtíð öldrunarþjónustu - Hlutverk sveitarfélaga
- Mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða
- Gott að eldast: Kynningarbæklingur
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (21)
- #1Guðjón Sigurðsson
Tvö atriði sem ég bið ykkur að hafa í huga: 1. Að einkaheimili verði viðurkennd sem hjúkrunarrými eftir aðlögun. 2. "Vegurinn heim" verði skoðaður. Lýst vel á planið sem reynir á alla aðila að gera hluti en tala minna. Ein spurning er varðar kassa væðingu kerfisins? Má ekki nota tækifærið og brjóta niður múra? Líta á einstaklinginn og þörf fyrir aðstoð frekar en að þetta gildi fyrir kassann 67 og eldri og annað fyrir aðra kassa sem kerfið er alltaf að troða okkur í. Gangi okkur öllum vel í þessu nauðsynlega verkefni.
- #2Pálmi V Jónsson
Verkefnið er mikilvægt en það vantar áherslu á lykilatriði: 1) Það er fjölþættur heilsubrestur sem knýr áfram þörf fyrir öldrunarþjónustu. Af því leiðir að höfuðáherslu verður að leggja á heilsufarsþætti eldra fólks, fullkomna greiningarvinnu, meðferð við hæfi, endurhæfingu og loks stuðning. Eðlilegt er að heimilislæknar séu í lykilhlutverki. Af þessu leiðri að ófullnægjandi er að tala um samþættingu heimahjúkrunar eða heimaþjónustu heilsugæslu og félagsþjónustu. Það væri nær lagi að leggja höfuðáherslu á fullkomna samþættingu heimilislækna og heimahjúkrunar og að því gefnu loks samþættingu… Lesa alla
Verkefnið er mikilvægt en það vantar áherslu á lykilatriði: 1) Það er fjölþættur heilsubrestur sem knýr áfram þörf fyrir öldrunarþjónustu. Af því leiðir að höfuðáherslu verður að leggja á heilsufarsþætti eldra fólks, fullkomna greiningarvinnu, meðferð við hæfi, endurhæfingu og loks stuðning. Eðlilegt er að heimilislæknar séu í lykilhlutverki. Af þessu leiðri að ófullnægjandi er að tala um samþættingu heimahjúkrunar eða heimaþjónustu heilsugæslu og félagsþjónustu. Það væri nær lagi að leggja höfuðáherslu á fullkomna samþættingu heimilislækna og heimahjúkrunar og að því gefnu loks samþættingu við félagsþjónustu. 2) Nauðsynlegt er að þarfagreina öll viðfangsefni allra þeirra sem þurfa á heimahjúkrun að halda og einnig þeim sem eru í endurteknum innlögnum eða með sjúkdóma á hástigi. Þessir einstaklingar þurfa á heildrænu öldrunarmati að halda í formi teymisvinnu, lækna, hjúkrunarfræðinga og fleiri faghópa. Eðlilegast er að þessi vinna fari fram á samfélagsstigi. 3) Til að ná utan um þarfagreiningu einstaklinganna í heimahjúkurn er eðlilegt að nýta til fullnustu interRAI HC matið. Önnur skyld tæki væri eðlilegt að nýta í félagsþjónustu ( contact assessment á ensku sem er sama tæki og nýtt er á Bráðamóttöku og er kallað bráðraþjónustumat ) og svo á sjúkrahúsi ( þar sem má nýta Bráðasjúkrahúsmatið auk annarra ) Öll þessi möt eru skilvirk, tala saman og gefa viðfangsefnalista yfir verkefni sem nauðsynlegt er að greina og meðhöndla, m.a. vitræna getu, hreyfigetu, næringu, heldni, andlega líðan, byltur, óráð og fleira. Þessi tæki gefa öll gæðavísa sem eru nauðsynlegir í eftirfylgd með þjónustunni. 4) Mjög ábatasamt væri að setja á laggirnar miðstöð fyrir interRAI möt á Íslandi að kanadískri, belgískri eða nýsjálenskri fyrirmynd. Með þessari tækni má greina áhættuhópa fyrir sérstök úrræði og eftirfylgd. 5) Regluleg lyfjarýni er nauðsynleg. Ekki ætti að vera heimilt að senda eldra fólk heima af sjúkrahúsi með lyf til lengri tíma en eins mánaðar. Þá ætti teymi heilsugæslunnar að yfirfara mál og taka yfir lyfjameðferð. Spurning er einnig hvort hámarkstími lyfjaskömmtunar ætti ekki að vera sex mánuðir fremur en ár hjá skjólstæðingum heimahjúkrunar og þá fari endurnýjun fram með heimsókn til heimilislæknis. 6) Stórefla þarf næringarmat og meðferð allra með langvinna sjúkdóma. 7) Öldrunargeðlækningum þarf að koma á laggirnar innan geðsviðs LSH og SAK. Þær eru ekki til í dag og eru veikasti hlekkurinn í þjónustu við eldra fólk. 8) Koma þarf á laggirnar sambýlum fyrir fólk með einmanakennd, þunglyndi og kvíðaröskun sem ætti að vera á hendi sveitarfélaga og ekkert þeirra undanskilið. 9) Fella út hugtakið hvíldarinnlagnir. Kalla það sem því nafni er nefnt skammtímainnlagnir með virkni. Meta má þarfir fyrir slík úrræði með þarfagreiningunni sem nefnd er að ofan. Því til viðbótar er mikilvægt að meta umönnunarálag ættingja. Þjónustuaðilar sem bjóða upp á skammtímainnlögn með vitrænni, andlegri og líkamlegri virkni reki þessa þjónustu sjálfstætt og ótengt varanlegri dvöl enda fara þessir hópar ekki saman. 10) Tryggja þarf eldra fólki aðgengi að endurhæfingu eftir bráðaveikindi. Ein vika í rúmi krefst tveggja vikna endurhæfingar, aðeins til að ná upp þróttleysi legunnar og við það bætist þörf sem tengist sjúkdómnum sem leiddi til innlagnar. 11) Leggja þarf áherslu á viðtal um meðferðarkmarkmið og endurvakningu Lífsskrár á vegum Embættis Landlæknis. Grundvallarábending mín er að það er ekki hægt að skipuleggja öldrunarþjónustu svo að vit sé í án þess að fullgreina þarfir eldra fólks en þær eru orsakaðar af heilsubresti. Taka þarf á öllum viðfangsefnum til að ná árangri. Og til þess að það gangi upp þarf að lyfta upp heilsugæslulæknum ( með viðeigandi starfsþjálfun ) til jafns við heimahjúkrun og starfsmenn félagsþjónustu. Ef það væri ekki heilsubrestur hjá eldra fólki, þá væri ekki þörf fyrir öldrunarþjónustu, svo nokkru næmi. Öldrunarþjónustan þarf að vera af margvíslegum tegundum og í réttum hlutföllum allt byggt á heildrænni þarfagreiningu alls eldra fólks þar sem 7% veikasta fólkið og 15% af viðkvæmasta fólkinu fengi hágæðaþjónustun á vegum þverfaglegs teymis heilsugæslu og félagsþjónustu. Öllu þessu þarf að lyfta fram með því að endurskrirfa þingsálykunartillöguna á þeim stöðum þar sem þessi atriði eiga heima. Undirritaður er tilbúinn að verða að liði í þeim efnum ef eftir því væri leitað. Virðingarfyllst, Pálmi V. Jónsson, lyf- og öldrunarlæknir ráðgjafi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis í öldrunarlækningum fv. yfirlæknir öldrunarlækningadeild Landspítala prófessor emeritus í öldrunarlækningum við Læknadeild Háskóla Íslands
- #3Kristín Björnsdóttir
Umsögn um Tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023–2027 Umsögn send í samráðsgátt Umsagnaraðilar: Kristín Björnsdóttir, prófessor við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, Margrét Guðnadóttir, sérfræðingur í hjúkrun og verkefnastjóri SELMU og doktorsnemandi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Inga Valgerður Kristinsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun við Heimahjúkrun heilsugæslunnar og doktorsnemandi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Vilhelmína Einarsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun við SELMU og doktorsnemandi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræð… Lesa alla
Umsögn um Tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023–2027 Umsögn send í samráðsgátt Umsagnaraðilar: Kristín Björnsdóttir, prófessor við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, Margrét Guðnadóttir, sérfræðingur í hjúkrun og verkefnastjóri SELMU og doktorsnemandi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Inga Valgerður Kristinsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun við Heimahjúkrun heilsugæslunnar og doktorsnemandi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Vilhelmína Einarsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun við SELMU og doktorsnemandi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Aðgerðaáætlunin byggir á þeirri stefnu að eldra fólk haldi áfram að búa á heimilum sínum þrátt fyrir minnkaða færni í kjölfar öldrunarbreytinga og versnandi eða dvínandi heilsufars. Í áætluninni er lögð áhersla á almenna heilsueflingu og endurhæfingu til að fólk viðhaldi sjálfstæði sínu sem lengst. Jafnframt er hvatt til þess að þjónusta verði skipulögð á persónumiðaðan hátt. Þessum áhersluatriðum ber að fagna, en við köllum hins vegar eftir skýrari stefnu varðandi uppbyggingu á heimahjúkrun. Fjölmörg lönd hafa tekist á við sambærileg verkefni og áberandi er að litið er til heimahjúkrunar sem lykilstarfsemi til að stefnan um lengda dvöl á eigin heimili nái fram að ganga. Í fyrirliggjandi aðgerðaáætlun er lítið fjallað um hvernig áformað er að styrkja heimahjúkrun til að takast á við þessi verkefni. Oft hefur verið bent á að samfara því að fólk búi lengur á heimilum sínum fjölgar flóknum verkefnum sem nauðsynlegt er að sinna í heimaþjónustu. Við köllum eftir nánari sýn á samræmdar hugmyndir um það hvernig tryggt verði að heimahjúkrun geti tekist á við þessi flóknu verkefni á komandi árum. 1. Rannsóknir sýna að árangursrík heimahjúkrun byggir á öflugu samstarfi við notendur, umönnunaraðila og fagfólk. Til þess að sú sýn um vel samþætta og samhæfða þjónustu sem lýst er í aðgerðaáætluninni nái fram að ganga er nauðsynlegt að veita heimahjúkrun skýrt umboð til að leiða það starf. Við hvetjum til þess að gerð verði áætlun um nauðsynlega mannaflaaukningu í grunnþjónustu heimahjúkrunar. Einnig að lögð verði fyrir áætlun um styrkingu hjúkrunarfræðinga í heimahjúkrun í faglegri nálgun sinni og úrlausnum á verkefnum í heimahúsum skjólstæðinga. Víða erlendis á sér stað mikil þróunarvinna við eflingu heimaþjónustu þar sem heimahjúkrun er í miðpunkti. Þegar hefur verið þróuð starfsemi hér á landi til að styðja hjúkrunarfræðinga við að veita fólki með sértæk heilsufarsvandamál meðferð á heimilum sínum (Hjartabilunarverkefnið og SELMA hjá Reykjavíkurborg). Við hvetjum til þess að svipaðar leiðir verði farnar við áframhaldandi þróun á þjónustu við hruma eldri borgara um allt land, þar sem áhersla er lögð á að efla þekkingu og færni hjúkrunarfræðinga við að takast á við flókin verkefni og auka stuðning þeirra og bjargráð til að leysa málin til fulls utan spítala. 2. Auka þarf samræmi á milli sveitarfélaga í því hvernig og hvaða þjónusta er veitt í heimahúsum. Þegar hefur verið sýnt fram á að samþætting og samvinna heilbrigðis og félagsþjónustu er lykilþáttur í nýtingu mannauðs og þéttingu þjónustukeðju til stuðnings hrumra í heimahúsum. Heimahjúkrun er veitt með margvíslegu sniði um landið. Munurinn verður hvað sýnilegastur á höfuðborgarsvæðinu. Heimahjúkrun í Reykjavík, starfar samkvæmt kröfulýsingu og samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Þjónustan í Reykjavík er samþætt við heimastuðning félagsþjónustu Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og býður því upp á sveigjanleika í viðbrögðum og þjónustustigi eftir aðstæðum hverju sinni. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun nágrannasveitarfélaganna; Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi og Mosfellsbæ, án samskonar samþættingar við heimastuðning félagsþjónustunnar. Þessar aðstæður gera það að verkum að áherslur og framkvæmd heimahjúkrunar verða misjafnar á milli sveitarfélaga. Við teljum afar brýnt að samþætting heimahjúkrunar og heimastuðnings sé innleidd og samræmd á höfuðborgarsvæðinu og um allt land, svo íbúum sé ekki mismunað eftir búsetu eins og frekast er unnt.
- #4Vilborg Gunnarsdóttir
Í meðfylgjandi skjali er umsögn Alzheimersamtakanna um aðgerðaráætlunina.
- #5Hrafnhildur Eymundsdóttir
Ábendingar stjórnar Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum vegna tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023–2027. Stjórn Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum skipa; Kristín Björnsdóttir (formaður stjórnar), Ingibjörg Hjaltadóttir, Helga Eyjólfsdóttir, Anna Björg Jónsdóttir, Konstantín Shcherbak, Sigurveig H. Sigurðardóttir og Sigurbjörg Hannesdóttir. Stjórn Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) fagnar vinnu við þróun þjónustu sem styður við eldra fólk sem býr á heimilum sínum… Lesa alla
Ábendingar stjórnar Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum vegna tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023–2027. Stjórn Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum skipa; Kristín Björnsdóttir (formaður stjórnar), Ingibjörg Hjaltadóttir, Helga Eyjólfsdóttir, Anna Björg Jónsdóttir, Konstantín Shcherbak, Sigurveig H. Sigurðardóttir og Sigurbjörg Hannesdóttir. Stjórn Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) fagnar vinnu við þróun þjónustu sem styður við eldra fólk sem býr á heimilum sínum. Undir C lið sem nefnist Upplýsingar í drögum að aðgerðaáætlun er fjallað um RHLÖ. Í kafla C.2 sem nefnist: Efling upplýsinga, rannsókna, nýsköpunar og þróunar í þjónustu við eldra fólk er lagt til að: • Styðja við fyrirhugaða eflingu Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) þar sem markmið og verkefni stofunnar verði útvíkkað, bæði hvað varðar aðkomu aðila að henni sem og hlutverk hennar innan öldrunarfræða. -Stjórn stofunnar hefur unnið að útfærslu slíkra hugmynda (sjá fylgiskjal 1) og fagnar þeim stuðningi sem fram kemur í fyrirliggjandi drögum að aðgerðaráætlun. • Að á einum stað verði safnað saman tímanlegum og samræmdum upplýsingum sem varða félags- og heilbrigðisþjónustu eldra fólks sem og stöðu þess hóps hvað líðan og velferð varðar. -Stjórn RHLÖ telur þetta verkefni brýnt og telur að þetta gæti orðið eitt af lykilverkefnum hinnar útvíkkuðu stofu. • Kallað er eftir rannsókn á framgangi og niðurstöðum þróunarverkefna. -Stjórnin telur að þetta sé áhugavert rannsóknarverkefni, sem gæti stutt við framgang rannsókna sem tengjast aðstæðum, líðan og stuðningi við eldra fólk. Verkefnið yrði mótað í samvinnu við Verkefnastjórn. • Loks er kallað eftir gerð kostnaðarmats meðan og eftir að þróunarverkefnum lýkur til að meta hvort og þá hver breytingin verði fyrir þjónustuaðila af samþættri heimaþjónustu. -Hér myndi stofan hafa áhuga á að mynda samstarf við aðra aðila, þar nefnum við Hagfræðistofnun sem möguleika í því sambandi. Tekið skal fram að stjórn RHLÖ lítur svo á að breytingar verði á starfsemi stofunnar á þann hátt að fleiri háskólastofnanir og þjónustuaðilar tengist henni. Því er áríðandi að breyta nafni hennar og var það niðurstaða stjórnar að hið nýja nafn verði Miðstöð í öldrunarfræðum. Virðingarfyllst, Fyrir hönd stjórnar RHLÖ, Hrafnhildur Eymundsdóttir ___________________________________________________________________________________________ Með kveðju Hrafnhildur Eymundsdóttir, verkefnastjóri Rannsóknarstofu HÍ og LSH í Öldrunarfræðum hrafnhie@landspitali.is http://www.landspitali.is/rhlo
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.