Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-247/2022 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027

Í drögum að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027 er byggt á samþykktri þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til 2030.

Drög þessi að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027 voru unnin af samráðshóp skipuðum fulltrúum helstu haghafa í geðheilbrigðismálum á landsvísu þ.e. heilbrigðisráðuneytis, notanda, heilbrigðisstofnana og háskólasamfélagsins og var farin sú leið að skipta hópnum upp í kjarnahóp og rýni hóp. Hlutverk samráðshópsins var að greina, meta, setja fram og fylgja eftir aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Ákveðið var að afmarka verkefni samráðshópsins og var hópnum ekki ætlað að ræða annars vegar endurskoðun lagaramma um nauðung og framkvæmd nauðungaraðgerða, og hins vegar stefnu og aðgerðaáætlun um fíknivanda. Báðir málaflokkarnir eru þegar í vinnslu innan Stjórnarráðsins. Þrátt fyrir framfarir í geðheilbrigðismálum á undanförnum árum þá standa Íslendingar, líkt og aðrar þjóðir, frammi fyrir fjölmörgum áskorunum sem takast verður á við til að ná framförum í málaflokknum. Áherslur til framtíðar í geðheilbrigðismálum þurfa að vera á jafnt og greitt aðgengi að einfaldri, skilvirkri og notendamiðaðri geðheilbrigðisþjónustu sem byggist á bestu mögulegu gagnreyndu meðferð og endurhæfingu hverju sinni, gæðaviðmiðum og nýsköpun og er veitt af hæfu starfsfólki.

S-247/2022· Annað· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. des. 2022 – 19. jan. 2023· 25 umsagnir

Drög að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027

Í drögum að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027 er byggt á samþykktri þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til 2030.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-247/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. janúar 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 25 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 857)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. september 2024)

Þingsályktunartillaga samþykkt í maí 2023

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (25)
  • #1Pálmi V Jónsson
    Drögin að þingsályktunartillögu um aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum er í veigamiklum og flestum atriðum ágæt. Ég leyfi mér að benda á fáein atriði sem ég tel að gætu styrkt aðgerðaráætlunina. 1) Rétt aðeins eru geðheilbrigðismál eldra fólks nefnd á bls. 12 í greinargerðinni en engin frekari umræða eða stefnumótun er nefnd en þetta er hratt vaxandi hópur viðkvæmra einstaklinga. Hvað öldrunarþjónustu varðar, þá leyfi ég mér að segja að þar sé þessi þáttur einn veikasti hlekkurinn í þjónustu við eldra fólk. Í tíð Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra var gerða áætlun um úrbætur í þes… Lesa alla

    Drögin að þingsályktunartillögu um aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum er í veigamiklum og flestum atriðum ágæt. Ég leyfi mér að benda á fáein atriði sem ég tel að gætu styrkt aðgerðaráætlunina. 1) Rétt aðeins eru geðheilbrigðismál eldra fólks nefnd á bls. 12 í greinargerðinni en engin frekari umræða eða stefnumótun er nefnd en þetta er hratt vaxandi hópur viðkvæmra einstaklinga. Hvað öldrunarþjónustu varðar, þá leyfi ég mér að segja að þar sé þessi þáttur einn veikasti hlekkurinn í þjónustu við eldra fólk. Í tíð Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra var gerða áætlun um úrbætur í þessum málaflokki, bæði með því að þróa göngudeildarþjónustu, legudeild fyrir eldra fólk með aðra geðræna sjúkdóma en heilabilun, svo og ráðgjafaþónustu fyrir hjúkrunarheimili og landsbyggð. Þessi áætlun skolaðist út með fjármálahruninu árið 2008 og hefur ekki komist á dagskrá síðan. Vil ég hvetja til þess að þessi áætlun verði tekin inn í þingsályktunartillöguna nú, þó með þeirri breytingu að þessi þáttur verði tengdur geðsviði LSH fremur en öldrunarlækningadeild. Rökstuðningur fyrir slíkri einingur liggur fyrir í greinargerð í aðdraganda fyrri áætlana. 2) Lyfta þarf fram fíknisjúkdómi eldra fólks sem er algengur og nú er mikið úrræðaleysi á því sviði. 3) Í starfi mínu sem formaður Færni- og heilsumatsnefndar, sem tekur til allra sem hugsanlega þurfa á hjúkrunarheimilisdvöl að halda og eru eldri en 18 ára, tel ég mig hafa orðið varan við hörgul á lengri tíma endurhæfingarúrræðum fyrir fólk með alvarlega geðsjúkdólma á miðjum aldri. Legg ég til að þetta atriði verði skoðað nánar. Einnig að lögð verði áhersla á heisluvernd og meðferð sómatískra sjúkdóma í hópi þessara einstaklinga en þessir þættir virðast oft verða útundan. 4) Nefnt er mikilvægi þess að settir verði fram gæðavísar fyrir geðheilbrigðisþjónustuna. Í því sambandi vil ég benda á að stöðluð matstæki eru til fyrir fólk sem sækir sér geiðheilbrigðisþjónustu og er 18 ára eða eldra. Þau hafa verið þýdd og rafvædd á Íslandi og þannnig tilbúin til notkunar. Með þessum stöðluðu matstækjum ( inerRAI Mental Health ) fylgja gæðavísar sem spegla vel starfsemina á þessu sviði. Líta má til Kanada í þessu sambandi, þar með talið til Canadian Institute of Health Informatics. 5) Sambærileg matstæki og nefnd eru í lið 4 eru til fyrir börn og ungmenni með geðrænan vanda án eða með þroskafrávikum. Kanna mætti gildi slíkra tækja í mati á þessum hópi einstaklinga, en slík matstæki gætu m.a. hjálpað til við forgangsröðun þeirra sem eru í mestri þörf fyrir skjóta úrvinnslu. Virðingarfyllst, Pálmi V. Jónsson, FACP, FRCP L Ráðgjafi Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðis í öldrunarlækningum Fyrrverandi yfirlæknir, öldrunarlækningadeild Landspítala, Prófessor emeritus í öldrunarlækningum, Læknadeild Háskóla Íslands, tölvupóstfang: palmivj@landspitali.is / palmi.v.jonsson@heilsugaeslan.is

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. sambandsins Valgerður Rún

  • #3Sjúkraliðafélag Íslands

    Í viðhengi er umsögn Sjúkraliðafélags Íslands um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027.

  • #4Geðhjálp

    Meðfylgjandi er umsögn landssamtakanna Geðhjálpar.

  • #5Steinunn Jóhanna Bergmann

    Meðfygjandi er umsögn Félagsráðgjafafélags Íslands við drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-247/2022: Drög að þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027 · Alviti