Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-224/2022 · Dómsmálaráðuneytið

Ný lög um nafnskírteini

Áformað er að setja ný heildarlög um nafnskírteini sem verða örugg persónuskilríki til auðkenningar og gild ferðaskilríki innan EES/Schengen-svæðisins

Nafnskírteini samkvæmt núgildandi lögum um útgáfu og notkun nafnskírteina nr. 25/1965 standast ekki kröfur nútímans til öruggra persónuskilríkja. Í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1157 um aukið öryggi persónuskilríkja, sem nú er í innleiðingarferli hjá sameiginlegu EES-nefndinni, er kveðið á um hvaða kröfur eru gerðar til öruggra persónuskilríkja sem einnig skulu teljast til gildra ferðaskilríkja á EES/Schengen-svæðinu. Áformað er að nafnskírteini samkvæmt nýjum lögum standist kröfur reglugerðarinnar og verði því hvort tveggja örugg persónuskilríki til auðkenningar og gild ferðaskilríki á EES/Schengen-svæðinu. Gert er ráð fyrir að ný og örugg nafnskírteini muni nýtast þeim sem kjósa að nota örugg og handhæg persónuskilríki sem einnig má nota sem ferðaskilríki þegar ferðast er á EES/Schengen-svæðinu. Þá þykir líklegt að sér í lagi ungmenni og aðrir sem ekki njóta ökuréttinda muni kjósa að nota ný handhæg nafnskírteini fremur en vegabréf sem persónuskilríki til auðkenningar í daglegu lífi. Til skoðunar hafa verið mismunandi kostir við útgáfu nafnskírteina hvað varðar útgáfu þeirra á stafrænu formi. Gert er ráð fyrir að nafnskírteini verði á plastformi en þó er ekki talið nauðsynlegt að í nýjum lögum verði kveðið á um form þeirra heldur nægi að setja slík ákvæði í reglugerð á grundvelli laganna. Lögin komi þá ekki í veg fyrir að unnt verði að gefa út stafræn nafnskírteini á grundvelli þeirra þegar fram líða stundir. Með lögunum verði heldur ekki komið í veg fyrir að unnt verði að hlaða nafnskírteinum niður í stafræn veski en til að byrja með yrðu slíkar stafrænar útgáfur tengdar útgefnum plastkortum.

S-224/2022· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. nóv. 2022 – 2. des. 2022· 2 umsagnir

Ný lög um nafnskírteini

Áformað er að setja ný heildarlög um nafnskírteini sem verða örugg persónuskilríki til auðkenningar og gild ferðaskilríki innan EES/Schengen-svæðisins

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-224/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. desember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 803)
Niðurstöður samráðs (9. janúar 2023)

Tvær umsagnir bárust um áformaskjalið sem verða teknar til skoðunar við vinnslu frumvarps til nýrra laga um nafnskírteini. Þegar drög að frumvarpinu eru tilbúin verða þau sett í Samráðsgátt og óskað umsagna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-224/2022: Ný lög um nafnskírteini · Alviti