Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-220/2022 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími)

Markmið frumvarpsins að formbinda samráð milli safnafólks og stjórnvalda annars vegar og hins vegar að samræma skipunartíma forstöðumanna höfuðsafna á Íslandi.

Frumvarpið er breytingalagafrumvarp sem breytir þrennum lögum: safnalögum, nr. 141/2011, lögum um Þjóðminjasafn Íslands, nr. 140/2011 og lögum um Náttúruminjasafn Íslands, nr. 35/2007. Í fyrsta lagi er við safnalög bætt ákvæði þess efnis að árlega fari fram samráðsfundur ráðherra með safnaráði og safnafólki. Í öðru lagi er bætt við lög um Þjóðminjasafn Íslands og lög um Náttúruminjasafn Íslands ákvæði um skipunartíma forstöðumanna. Tilefni lagasetningarinnar eru samráðsfundir sem menningar- og viðskiptaráðherra átti með fulltrúum safnafólks haustið 2022. Nauðsynlegt var talið að komið yrði á formlegu samráði milli aðila annars vegar og hins vegar hugað að samræmdum skipunartíma forstöðumanna höfuðsafna á Íslandi. Höfuðsöfnin eru þrjú: Listasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands. Ákvæði eru þegar til staðar í myndlistarlögum, nr. 64/2012, varðandi skipunartíma forstöðumanns Listasafns Íslands þess efnis að heimilt sé að endurnýja skipun safnstjóra einu sinni til fimm ára, sbr. 3. mgr. 4. gr. laganna. Í frumvarpinu er sams konar ákvæði bætt við lög um Náttúruminjasafn Íslands og lög um Þjóðminjasafn Íslands.

S-220/2022· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. nóv. 2022 – 29. nóv. 2022· 6 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími)

Markmið frumvarpsins að formbinda samráð milli safnafólks og stjórnvalda annars vegar og hins vegar að samræma skipunartíma forstöðumanna höfuðsafna á Íslandi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-220/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. nóvember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 741)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Minjastofnun Íslands

    Góðan dag. Viðfest er umsögn Minjastofnunar Íslands vegna frumvarps til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími). Fyrir hönd Minjastofnunar, Gísli Óskarsson sviðsstjóri lögfræðisviðs

  • #2Félag þjóðfræðinga á Íslandi
    Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi (FÞÍ) fagnar þeim breytingum sem fram koma í 1 gr. frumvarpsins, þar sem safnaráði er falin sú ábyrgð að stofna til samráðsvettvangs milli safnasviðsins og ráðuneytis. Við teljum að þessi breyting verði til að auka traust á milli fagfólks og ráðuneytis og tryggi enn frekar gott samstarf milli safna á Íslandi og ráðherra. Við fögnum sérstaklega og teljum mikilvægt að fulltrúar frá fagfélögum sem helst tengjast málefnasviði safna, en eiga ekki fulltrúa í safnaráði, séu þátttakendur á samráðsfundunum, s.s. frá félögum fornleifafræðinga, sagnfræðinga, þjóðfræ… Lesa alla

    Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi (FÞÍ) fagnar þeim breytingum sem fram koma í 1 gr. frumvarpsins, þar sem safnaráði er falin sú ábyrgð að stofna til samráðsvettvangs milli safnasviðsins og ráðuneytis. Við teljum að þessi breyting verði til að auka traust á milli fagfólks og ráðuneytis og tryggi enn frekar gott samstarf milli safna á Íslandi og ráðherra. Við fögnum sérstaklega og teljum mikilvægt að fulltrúar frá fagfélögum sem helst tengjast málefnasviði safna, en eiga ekki fulltrúa í safnaráði, séu þátttakendur á samráðsfundunum, s.s. frá félögum fornleifafræðinga, sagnfræðinga, þjóðfræðinga og listfræðinga. Þá fögnum við þeim breytingum sem fram koma í 2. og 3. gr. frumvarpsins þar sem skipunartími forstöðumanna höfuðsafnanna þriggja er samræmdur. Við teljum að breytingin feli í sér aukið jafnræði milli safnanna, verði til að styrkja faglega stjórn hverrar stofnunar og tryggi að endurnýjun þekkingar verði með eðlilegum hætti við stjórnun þessara mikilvægu menningarstofnana. Við viljum þó sérstaklega benda á að til þess að auka gagnsæi og lýðræðisleg vinnubrögð enn frekar er mikilvægt að ráðherra auglýsi stöður forstöðumanna höfuðsafnanna þriggja. Í þessu samhengi bendum við sérstaklega á 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um Listasafn Íslands, nr. 171/2014. Samkvæmt ákvæðinu ber ráðherra ávallt skylda til að auglýsa starf forstöðumanns Listasafns Íslands, eftir að lögbundnum skipunartíma lýkur. Við teljum æskilegt að sami áskilnaður eigi við um Þjóðminjasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands og teljum að slík ákvæði ættu heima í lögum um Þjóðminjasafn Íslands, nr. 140/2011 og lögum um Náttúruminjasafn Íslands, nr. 35/2007. Virðingarfyllst Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi Anna Karen Unnsteins, formaður Arndís Hulda Auðunsdóttir, gjaldkeri Gunnar Óli Dagmararson, ritari Sigurlaug Dagsdóttir, meðstjórnandi Sandra Björg Ernudóttir, meðstjórnandi

  • #3Þjóðminjasafn Íslands

    Í viðhengi er umsögn Þjóðminjasafns Íslands um frumvarp til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími).

  • #4Safnasjóður

    Meðfylgjandi er umsögn safnaráðs varðandi mál nr. 220/2022 í samráðsgátt stjórnvalda, um frumvarp til laga um breytingu á safnalögum nr. 140/2011, lögum um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011 og lögum um Náttúruminjasafn Íslands nr. nr. 35/2007, um samráð og skipunartíma.

  • #5Náttúruminjasafn íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Náttúruminjasafns Íslands við frumvarpi til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími). Mál nr. 220/2022. Með þökkum fyrir samráðið. Hilmar J. Malmquist forstöðumaður.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-220/2022: Frumvarp til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími) · Alviti