Áform um lagasetningu - breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði (hnúðlax)
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, til að lögfesta ákvæði um rannsóknir og veiðar á hnúðlaxi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-213/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 8. desember 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 957)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. apríl 2023)
Fimm umsagnir bárust um áformin, þ.e. frá tveimur einstaklingum, tveimur fyrirtækjum og Umhverfisstofnun. Fjórir aðilar byggðu umsagnir sínar á umfjöllun um umhverfisáhrif hnúðlaxa og hvernig sé æskilegt að bregðast við því. Einn aðili gerði tillögu um að frumvarpið taki einnig til strokulaxa en þar sem það er fiskeldi verður ekki fjallað um það í frumvarpinu. Ráðuneytið lagði mat á allar umsagnirnar. Miðað er við að lögfest verði bráðabirgðaákvæði með tilteknum gildistíma sem heimilar veiðar á hnúðlaxi með ádráttarnetum og einnig er sérstök reglugerðarheimild í frumvarpinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Jón Tómas Svansson
Til að fá einhverja mynd af þessum stofni við landið .þá er eðlilegt að stórauka netaveiði við ströndina með stærri möskva 4" 4,5" og 5" , þetta myndi sýna hvort eitthvað er á ferðinni.
- #2Náttúrufræðistofnun Íslands
Umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands er í viðhengi.
- #3Óttar Magnús G Yngvason
Lagaákvæði til höfuðs hnúðlaxi og til höfuðs stroklaxi af norskum laxastofni. Vissulega er tímabært að setja lagaákvæði til höfuðs innrás hnúðlaxins í íslenskar veiðiár. Hann er hvumleitt aðskotadýr í íslenskri náttúru og getur skaðað búsvæði íslenska laxins. En hnúðlaxinn er þó ekki eins skaðlegur og kynbættur stroklax af norska eldislaxastofninum, sem hér er allsráðandi, þar sem hnúðlaxinn blandast ekki íslenska villta laxinum. Um leið og sett eru lagaákvæði til höfuðs hnúðlaxinum er tímabært að setja lagaákvæði til höfuðs notkunar kynbættra erlendra og framandi laxastofna í sj… Lesa alla
Lagaákvæði til höfuðs hnúðlaxi og til höfuðs stroklaxi af norskum laxastofni. Vissulega er tímabært að setja lagaákvæði til höfuðs innrás hnúðlaxins í íslenskar veiðiár. Hann er hvumleitt aðskotadýr í íslenskri náttúru og getur skaðað búsvæði íslenska laxins. En hnúðlaxinn er þó ekki eins skaðlegur og kynbættur stroklax af norska eldislaxastofninum, sem hér er allsráðandi, þar sem hnúðlaxinn blandast ekki íslenska villta laxinum. Um leið og sett eru lagaákvæði til höfuðs hnúðlaxinum er tímabært að setja lagaákvæði til höfuðs notkunar kynbættra erlendra og framandi laxastofna í sjókvíaeldi íslenskra fjarða. Norski kynbætti eldislaxinn blandast auðveldlega íslenskum laxastofnum og eyðieggur villta laxastofninn á örfáum kynslóðum laxa. Þannig hefur kynbættur eldislaxinn nú þegar gert út af við 70% norskra laxveiðiáa. Ákvæði í 49. gr. reglugerðar nr. 1170/2015 um merkingar eldislaxa var af einhverjum undarlegum ástæðum fellt niður í nýrri reglugerð um fiskeldi nr. 540/2020. Ákvæðið hljóðaði þannig: “Matvælastofnun skal gera kröfur um auðkenningu eldislax þannig að 10% af útsettum seiðum í sjókvíar verði uggaklippt. Matvælastofnun getur krafist þess að hærra hlutfall af útsettum seiðum sé uggaklippt ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.” Alkunnugt er að stroklax sem sleppur sem seiði eða smáfiskur þekkist ekki, þegar hann gengur upp í veiðiá. Hér gæti verið ástæða þsss hversu tiltölulega fáir eldislaxar hafa veiðst síðustu árin. En þar kann einnig að koma til, að eldislaxar ganga oft seint að hausti í árnar. Erfðavísarannsóknir á stroklöxum eru jákvæðar svo langt sem þær ná, en forsenda þeirra er að stroklaxarnir þekkist örugglega þegar þeim er landað. Það er ekki aðeins, að norskættuðu stroklaxarnir blandist villta laxinum á einhverjum árum. Strax og þeir eru gengnir upp í náttúrulega á, þá hrygna þeir sjálfir. Og hver strokhrygna hrygnir 5000 hrognum. Brýnt er að merkingarákvæðið verði lögfest, þannig að ekki sé leið til breytinga með einfaldri reglugerðarbreytingu. Nú er tækifæri til þess. Reyndar væri nauðsynlegt fyrir vernd íslenskrar náttúru að lagfæra eða lögfesta mörg önnur ákvæði reglugerðar um fiskeldi nr. 540/2020. Lagt er til að ráðuneytið fái til liðs við undirbúning lagabreytinganna fulltrúa Landssambands veiðifélaga og fulltrúa náttúruverndarsamtakannna Laxinn lifi og Íslenska náttúruverndarsjóðsins. Eftir að upplýst er um hinn risavaxna náttúruskaða með a.m.k. 81.000 stroklöxum úr sjókví í Arnarfirði er brýnt að vernda og lagfæra sem kostur er orðspor óspilltrar náttúru Íslands. Sérstaklega með hliðsjón af því, að slysið var ekki upplýst fyrr en 1 ½ ári eftir að það gerðist. Loks skal nefnt, að brýn þörf er að lögfesta skyldu allra fyrirtækja í sjókvíalaxeldi, til að taka P&I (Protection & Indemnity) ábyrgðartryggingu, til að tryggja greiðslu tjónbóta, sem slys í rekstrinum kunna að valda. Þannig ábyrgðartrygging er alkunna m.a. í rekstri skipa. 7. desember 2022. f.h. Náttúruverndarfélagsins Laxinn lifi. Óttar Yngvason
- #4Jóhannes Sturlaugsson
Umsögn Jóhannesar Sturlaugssonar hjá rannsóknarfyrirtækinu Laxfiskum er að finna í viðhengi.
- #5Ástrós Eva Ársælsdóttir
Umsögn Ungra umhverfissinna er í viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.