Frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum nr. 137/2001 (framleiðslustyrkur til lokafjármögnunar)
Frumvarpið kveður á um breytingar á kvikmyndalögum í átt að nútímalegu fyrirkomulagi sjóðakerfis leikinna sjónvarpsþáttaraða. Einnig er skerpt á nokkrum atriðum um Kvikmyndasafn og Kvikmyndamiðstöð.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-152/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 7. september 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 899)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. ágúst 2026)
Tvær umsagnir bárust. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 13. nóvember 2023. Í greinargerð er fjallað um samráð og viðbrögð við athugasemdum. Lög um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (framleiðslustyrkur til lokafjármögnunar) voru samþykkt á Alþingi 20. mars 2024.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Kvikmyndasafn Íslands
Góðan dag, Í lögum um skylduskil til safna nr. 20/2002 er Kvikmyndasafni Íslands er gert að varðveita skyldueintök kvikmynda og fara með þau í samræmi við tilgang laganna. Engin viðurlög liggja við því að skila ekki efni til safnsins. Skilaskylda hvílir á framleiðanda kvikmyndar en talsvert vantar upp á að allt efni hafi skilað sér til safnsins í gegnum tíðina. Kvikmyndasafnið gerði nýlega samning við Kvikmyndamiðstöð Íslands um að greiða ekki lokastyrk verkefna fyrr en full skil til safnsins hafa átt sér stað. Þetta er gert til að tryggja varðveislu kvikmyndaarfsins til framtíðar. Frá því… Lesa alla
Góðan dag, Í lögum um skylduskil til safna nr. 20/2002 er Kvikmyndasafni Íslands er gert að varðveita skyldueintök kvikmynda og fara með þau í samræmi við tilgang laganna. Engin viðurlög liggja við því að skila ekki efni til safnsins. Skilaskylda hvílir á framleiðanda kvikmyndar en talsvert vantar upp á að allt efni hafi skilað sér til safnsins í gegnum tíðina. Kvikmyndasafnið gerði nýlega samning við Kvikmyndamiðstöð Íslands um að greiða ekki lokastyrk verkefna fyrr en full skil til safnsins hafa átt sér stað. Þetta er gert til að tryggja varðveislu kvikmyndaarfsins til framtíðar. Frá því samkomulag þetta var gert hafa allar styrktar kvikmyndir skilað sér örugglega til safnsins. Hér er þó eingöngu um samning að ræða sem getur gleymst eða farist fyrir í tímans rás. Það er mjög þarft, í þágu varðveislu kvikmyndaarfs þjóðarinnar til framtíðar, að skilyrða útgreiðslu lokastyrks frá Kvikmyndamiðstöð til framleiðanda, við full skil kvikmyndar til Kvikmyndasafns Íslands. Með fullum skilum er átt við að kvikmynd hafi verið skilað skv. gæðakröfum safnsins. Finna má þær reglur á heimasíðu Kvikmyndasafns Íslands. Það er vert að hnykkja á því að síðan kvikmyndir voru allar framleiddar á stafrænu formi (í stað filmu) er enn meiri hætta á að efni glatist í rafrænum heimu, sé því ekki skilað til langtímavarðveislu hjá Kvikmyndasafni Íslands. Þar sem sjaldan er átt við Kvikmyndalög er að mati Kvikmyndasafns Íslands tímabært að festa þessi ákvæði í lög, eða reglugerð ef svo ber undir. Virðingarfyllst, Þóra Ingólfsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands.
- #2Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda (Samtök iðnaðarins)
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.