Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-217/2021 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlenging bráðabirgðaheimilda).

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlenging bráðabirgðaheimilda).

Hinn 20. apríl 2020 tóku gildi breytingarlög nr. 32/2020 sem heimiluðu framlengingu fresta og rafræna meðferð mála hjá sýslumönnum, dómstólum o.fl., í því skyni að koma í veg fyrir réttarspjöll af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru og draga úr neikvæðum áhrifum faraldursins. Með frumvarpinu var meðal annars samþykkt að bæta ákvæðum til bráðabirgða við lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991, lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008, lög um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991 og erfðalög nr. 8/1962. Heimildirnar hafa reynst vel og ákveðið var að framlengja gildistíma þeirra með frumvarpi því er varð að lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru (framlenging bráðabirgðaheimilda), nr. 121/2020. Með lögunum voru heimildir sýslumannsembætta, lögreglu og dómstóla til þess að beita rafrænum lausnum og fjarfundabúnaði í ákveðnum tilvikum framlengdar til ársloka 2021. Í ljósi þess að áhrifa heimsfaraldurs kórónuveirunnar gætir enn í dag, er talið rétt að framlengja bráðabirgðaheimildirnar á ný þannig að tími gefist til að taka ákvæði laganna til frekari endurskoðunar. Með frumvarpi þessu er lagt til að framangreindar bráðabirgðaheimildir verði framlengdar til ársloka 2024. Þá samþykkti Alþingi þann 27. febrúar 2017 bráðabirgðaheimild þess efnis að fram til 1. janúar 2022 geti Landsréttur haft aðsetur utan Reykjavíkur, sbr. 3. gr. laga nr. 10/2017. Frá því að Landsréttur tók til starfa hefur hann haft aðsetur í Kópavogi og þar sem enn er unnið í húsnæðismálum dómstólsins er lagt til að umrædd heimild verði framlengd um önnur fimm ár, eða fram til 1. janúar 2027.

S-217/2021· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. nóv. 2021 – 22. nóv. 2021· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlenging bráðabirgðaheimilda).

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlenging bráðabirgðaheimilda).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-217/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. nóvember 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 151)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (13. desember 2021)

Engar umsagnir komu um málið og var það lagt fram á Alþingi 9. desember 2021

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-217/2021: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlenging bráðabirgðaheimilda). · Alviti