Aform um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar áform um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991. Með frumvarpinu verður stefnt að breytingum þannig að lögin endurspegli þá þróun sem orðið hefur á rekstri skólans frá gildistöku laganna.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-210/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. nóvember 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 458)
Niðurstöður samráðs (21. janúar 2022)
Engar umsagnir bárust við áform um lagasetningu. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991, eru kynnt til umsagnar á Samráðsgátt stjórnvalda frá 21. janúar til 4. febrúar 2022.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt
Engar umsagnir hafa borist.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.