Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-185/2021 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um lagasetningu - Dýralyf

Áform um lagasetningu til innleiðingar á reglugerðum ESB á sviði dýralyfja.

Starfshópur skipaður af heilbrigðisráðuneytinu vinnur að gerð frumvarps um heildarlög um dýralyf. Frumvarpið er sett til innleiðingar á tveimur reglugerðum ESB á sviði dýralyfja, annars vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/5 frá 11. desember 2018 um breytingu á reglugerð (EB) 726/2004 um málsmeðferð Bandalagsins við veitingu leyfa fyrir manna- og dýralyfjum og eftirlit með þeim lyfjum og um stofnun Lyfjastofnunar Evrópu, um breytingu á reglugerð (EB) 1901/2006 um lyf fyrir börn og á tilskipun 2001/83/EB um Bandalagsreglur um lyf sem ætluð eru mönnum og hins vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/6 frá 11. desember 2018 um dýralyf og um niðurfellingu á tilskipun 2001/82/EB (dýralyfjareglugerðin) en hún inniheldur heildarlöggjöf um dýralyf. Frumvarpið byggir einna helst á síðarnefndu reglugerðinni, dýralyfjareglugerðinni, sem fjallar einna helst um markaðsleyfi, framleiðslu, afhendingu og notkun. Einnig verða gerðar breytingar á lyfjalögum nr. 100/2020, þ.e. felld brott þau ákvæði sem færast yfir í ný lög um dýralyf. Stefnt er að því að leggja fram frumvarpið á komandi haustþingi og að lögin taki gildi 28. janúar 2022 á sama tíma og reglugerðirnar koma til framkvæmda.

S-185/2021· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. sep. 2021 – 12. okt. 2021· 0 umsagnir

Áform um lagasetningu - Dýralyf

Áform um lagasetningu til innleiðingar á reglugerðum ESB á sviði dýralyfja.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-185/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. október 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 149)
Niðurstöður samráðs (19. október 2021)

Engar umsagnir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-185/2021: Áform um lagasetningu - Dýralyf · Alviti