Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-182/2021 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt (samsköttun)

Í frumvarpinu felast í tillögur að breytingum á 55. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, efni frumvarpsins er endurflutt með breyttu heiti þar sem hluti frumvarpsins hefur verið fellt brott. Efni frumvarpsins hefur áður komið á samráðsgátt, sbr. mál nr. 184/2020, og því er gefinn styttri tími til samráðs.

Lagt er til að frumvarpið verði endurflutt með breyttu heiti þar sem hluti frumvarpsins hefur verið fellt brott. Frumvarpið var fyrst lagt fram á 149. löggjafarþingi 2018–2019, þingskjal 593, 433. mál en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið var endurflutt lítillega breytt á 150. löggjafarþingi 2019–2020, þingskjal 298, 269. mál en náði ekki heldur fram að ganga þá. Þá var frumvarpið enn endurflutt á 151. löggjafarþingi 2020-2021, þingskjal 4, 4. mál en náði ekki fram að ganga. Tillaga frumvarpsins um breytingar á reglum um samsköttun félaga er talið nauðsynlegt að afgreiða sem fyrst þar sem hún er lögð fram til að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að íslenskar reglur um samsköttun og nýtingu eftirstöðva rekstrartapa félaga kunni að brjóta í bága við 31. og 40. gr. EES-samningsins um staðfesturétt og frjálst flæði fjármagns. Frumvarp það sem lagt var fram á 151. löggjafarþingi fól einnig í sér tillögur til breytinga á ákvæði 57. gr. b laga um tekjuskatt um takmörkun vaxtafrádráttar sem og tillögur til breytinga á lögum um staðgreiðslu um útsenda starfsmenn. Frumvarp það sem lagt var fram á 150. löggjafarþingi 2019–2020 fól einnig í sér endurskoðun á gildandi ákvæði 57. gr. a, svokölluðu CFC-ákvæði (e. Controlled Foreign Corporations) til frekari skýringar og með hliðsjón af tillögum sem lagðar hafa verið fram á alþjóðavettvangi.

S-182/2021· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. sep. 2021 – 30. sep. 2021· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt (samsköttun)

Í frumvarpinu felast í tillögur að breytingum á 55. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, efni frumvarpsins er endurflutt með breyttu heiti þar sem hluti frumvarpsins hefur verið fellt brott. Efni frumvarpsins hefur áður komið á samráðsgátt, sbr. mál nr. 184/2020, og því er gefinn styttri tími til samráðs.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-182/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. september 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 137)
Niðurstöður samráðs (14. október 2021)

Tvær ábendingar vegna málsins bárust í samráðsgáttina, þ.e. annars vegar umsögn frá Alþýðusambandi Íslands og hins vegar umsögn frá KPMG ehf. Meðfylgjandi umfjöllun í niðurstöðuskjali hefur verið skipt í efnisflokka. Fyrirhugað er að frumvarp um breytingu á lögum um tekjuskatt (samsköttun) verði lagt fram á Alþingi á haustmánuðum 152. löggjafarþings 2021-2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-182/2021: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt (samsköttun) · Alviti