Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-188/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt

Áform um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt.

Sú leið sem áformuð er með fyrirhuguðu frumvarpi er að leggja til breytingar á lögum um virðisaukaskatt í fjórum liðum auk þess sem lagðar verða til breytingar á lögum um fjársýsluskatt sem afleiddar breytingar af þeim áformuðu breytingum að skýra betur undanþágu fjármálastarfsemi frá virðisaukaskatti í lögum um virðisaukaskatt. Um er að ræða nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laga um virðisaukaskatt er varða fjármálastarfsemi í ljósi þeirrar þróunar og tæknibreytinga sem átt hafa sér stað á sviði fjármálaþjónustu síðustu ár. Þá er áformað að leggja til framlengingu á ákvæðum til bráðabirgða XXXIII og XXXIV í lögunum til og með 31. desember 2021 og breytingar á ákvæði 4. mgr. 25. gr. laganna er kveður á um endurgreiðslu innskatts. Loks er áformað að lögfesta á ný ákvæði til bráðabirgða XXIX þess efnis að heimilt verði að fella niður virðisaukaskatt við innflutning á lyfjum sem gefin eru ríkinu eða stofnunum þess til nota við meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum. Um er að ræða nauðsynlegar breytingar á framangreindum ákvæðum.

S-188/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. sep. 2020 – 28. sep. 2020· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt

Áform um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-188/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 372)
Niðurstöður samráðs (20. október 2020)

Fyrirhugað er að birta drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda í lok október 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-188/2020: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um fjársýsluskatt · Alviti