Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga nr. 140/2019
Með frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um skráningu einstaklinga nr. 140/2019. Lagt er annars vegar til að lagastoð verði sett undir útgáfu kerfiskennitalna fyrir andvana fædd börn sem fædd eru eftir 22. viku meðgöngu og hins vegar er gildistöku tiltekinna ákvæða frestað.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-185/2020)
- Umsagnarfrestur hefst · til 20. september 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 207)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (21. september 2021)
Niðurstaða málsins er í stuttu máli sú að frumvarpið varð að lögum og er nú heimilt að veita andvana fæddum börnum kerfiskennitölu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Samband íslenskra sveitarfélaga
Sjá viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.