Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-183/2020 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum (milliverðlagning). Endurflutt frumvarp.

Með frumvarpinu er lagt til að ríkisskattstjóri fái heimild til að leggja stjórnvaldssektir á lögaðila sem brýtur gegn skjölunarskyldu lögaðila skv. 5. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga. Endurflutt sbr. mál nr. 322/2019.

Frumvarpið var lagt fram á 150. löggjafarþingi 2019–2020, þingskjal 973, 594. mál en náði ekki fram að ganga. Í því er lagt til að lögfestar verði reglur um sektarheimild ríkisskattstjóra þegar skjölunarskyldir lögaðilar fara ekki að ákvæðum 5. mgr. 57. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, í milliverðlagningarmálum. Með frumvarpinu eru lagðar til tvær meginbreytingar á milliverðlagningarákvæði tekjuskattslaga í 57. gr. þeirra. Annars vegar er lagt til að skýra orðalag 1. málsl. 5. mgr. 57. gr. svo ljóst sé að skjölunarskylda aðila nái einnig til viðskipta lögaðila við fasta starfsstöð sína. Hins vegar er lögð til sú breyting á sömu grein að ríkisskattstjóri fái sektarheimild þar sem skort hefur úrræði til að framfylgja því að skattaðili sinni skyldu sinni skv. 5. mgr. 57. gr. um skjölunarskyldu aðila. Við endurflutning frumvarpsins hafa fleiri breytingar verið gerðar á frumvarpinu. Sérstaklega er nú kveðið á um skjölunarskyldu og sektarbeitingu í þeim tilvikum sem aðili, er rekur hér á landi fasta starfsstöð, vanrækir skjölunarskyldu vegna viðskiptalegra ráðstafana við föstu starfsstöðina sem og vegna viðskipta föstu starfsstöðvarinnar við aðra tengda aðila. Einnig hefur ákvæði er varðaði lægri sektarfjárhæð í þeim tilvikum að lögaðili sinnir ekki skjölunarskyldu með fullnægjandi hætti verið fellt brott. Þá hefur kærufrestur verið lengdur í almennan kærufrest samkvæmt lögum um yfirskattanefnd, nr. 30/1992. Loks voru þær breytingar gerðar að hámarkssektarálagning getur nú numið 12 milljónum króna í stað 6 milljóna eins og áður var þar sem brot kunna að hafa staðið yfir í mörg ár og verið gróf.

S-183/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. sep. 2020 – 23. sep. 2020· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum (milliverðlagning). Endurflutt frumvarp.

Með frumvarpinu er lagt til að ríkisskattstjóri fái heimild til að leggja stjórnvaldssektir á lögaðila sem brýtur gegn skjölunarskyldu lögaðila skv. 5. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga. Endurflutt sbr. mál nr. 322/2019.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-183/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 3)
Niðurstöður samráðs (25. september 2020)

Fyrirhugað er að frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, um milliverðlagningu, verði lagt fram á Alþingi á haustþingi 2020, lítið eitt breytt að teknu tilliti til þeirra umsagna sem bárust um málið. Sjá nánari umfjöllun í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-183/2020: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum (milliverðlagning). Endurflutt frumvarp. · Alviti