Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-181/2020 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 (nefnd um eftirlit með lögreglu o.fl.)

Um er að ræða áform um ýmsar breytingar á lögum um lögreglu nr. 90/1996, þar á meðal á hlutverki nefndar um eftirlit með lögreglu.

Frumvarpið tekur m.a. á breytingum á hlutverki nefndar um eftirlit með lögreglu. Um er að ræða endurskoðun á hlutverki nefndar um eftirlit með lögreglu sem þörf er á að skilgreina með skýrari og markvissari hætti, í ljósi reynslu síðustu ára. Einnig er frumvarpinu ætlað að lögfesta starfsemi lögregluráðs, færa ákvæði um valdbeitingu og meðferð valdbeitingatækja og skotvopna úr vopnalögum yfir í lögreglulög, lögfesta ákvæði um samvinnu við erlend lögregluyfirvöld ásamt öðrum minniháttar breytingum.

S-181/2020· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. sep. 2020 – 23. sep. 2020· 1 umsögn

Áform um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 (nefnd um eftirlit með lögreglu o.fl.)

Um er að ræða áform um ýmsar breytingar á lögum um lögreglu nr. 90/1996, þar á meðal á hlutverki nefndar um eftirlit með lögreglu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-181/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 365)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. desember 2020)

Ein umsögn barst vegna áformanna um breytingu á lögreglulögum. Frumvarp til breytinga á lögreglulögum var birt á vef ráðuneytisins 4. nóvember 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Þorsteinn Kristinsson
    1. Það að setja tímafrest á kvartanir getur orkað mjög tvímælis. Dæmi eru um að Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hafi tekið sér meira en 20 mánuði til að svara einfaldri fyrirspurn og því gætu lögregluembætti vegna manneklu eða jafnvel vísvitandi komið í veg fyrir lögmætar kvartanir til nefndarinnar. 2. Einnig mætti taka til athugunar hvort að nefndin ætti líka að hafa eftirlit með sérfræðingum sem lögreglan kallar til við rannsókn sakamála í þeim tilfellum sem ákært er einvörðungu á grundvelli vitnisburðar sérfræðiálits þeirra. Til dæmis þegar meintur grunur leikur á því að sérfræðingur kann a… Lesa alla

    1. Það að setja tímafrest á kvartanir getur orkað mjög tvímælis. Dæmi eru um að Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hafi tekið sér meira en 20 mánuði til að svara einfaldri fyrirspurn og því gætu lögregluembætti vegna manneklu eða jafnvel vísvitandi komið í veg fyrir lögmætar kvartanir til nefndarinnar. 2. Einnig mætti taka til athugunar hvort að nefndin ætti líka að hafa eftirlit með sérfræðingum sem lögreglan kallar til við rannsókn sakamála í þeim tilfellum sem ákært er einvörðungu á grundvelli vitnisburðar sérfræðiálits þeirra. Til dæmis þegar meintur grunur leikur á því að sérfræðingur kann að hafa brotið gegn lögum t.d. með meinsæri eða hafi leitast við að koma því til leiðar að saklaus einstaklingur verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað með vísvitandi rangfærslum við rannsókn mála.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-181/2020: Áform um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 (nefnd um eftirlit með lögreglu o.fl.) · Alviti