Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-173/2020 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðistjórn grásleppu o.fl.)).

Með frumvarpi þessu er lagt til að tekin verði upp aflamarksstjórn við veiðar á grásleppu. Auk þess er lagt til að heimilað verði að úthluta aflahlutdeild til veiða á staðbundnum nytjastofnum hryggleysingja, þannig að sérstakt aflamark komi fyrir veiðisvæði.

Með frumvarpi þessu er lagt til að: -- aflamarki verði úthlutað til veiða á grásleppu. -- heimilað verði að úthluta svæðisbundnu aflamarki fyrir svæðisbundna stofna. -- sandkoli verði kvótasettur fyrir öll Íslandsmið.

S-173/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. sep. 2020 – 18. sep. 2020· 64 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðistjórn grásleppu o.fl.)).

Með frumvarpi þessu er lagt til að tekin verði upp aflamarksstjórn við veiðar á grásleppu. Auk þess er lagt til að heimilað verði að úthluta aflahlutdeild til veiða á staðbundnum nytjastofnum hryggleysingja, þannig að sérstakt aflamark komi fyrir veiðisvæði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-173/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 64 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 419)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. nóvember 2021)

Alls bárust 64 umsagnir. Af þeim sem tóku beina afstöðu til þess hvort færa ætti grásleppuveiðar undir aflamarksstjórn voru 39 umsagnaraðilar fylgjandi tillögunni og 21 andvígur. Auk þess bárust umsagnir varðandi stjórn veiða á hryggleysingjum og sandkola. Tilefni þótti til að breyta frumvarpinu í ljósi framkominna athugasemda eins og rakið er nánar í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (64)
  • #1Einar E Sigurðsson

    Umsögn í samráðsgátt Grásleppa.

  • #2Vilhjálmur Jónsson

    Góðan dag. Mér finnst meira mæla með en á móti. Vil strax taka fram, að ég er ekki hlutlaus, hafandi stundað grásleppuveiðar í áratugi og er ekki hættur. Sóknarmark í grásleppu hefur í áranna rás bara verið höfuðverkur með öllum dagatakmörkunum og tilfærslum. Jákvæðar afleiðingar öllum til hagsbóta yrðu hættuminni sjósókn, betri nýting veiðarfæra, báts, tækja, og svigrúm til skipulags á eigin útgerð. Neikvætt yrði þrengra rými til nýliðunar í greininni. Með kveðju, Vilhjálmur Jónsson, Vopnafirði

  • #3Ríkharð Lúðvíksson

    Ég er fylgjandi því að setja grásleppu í aflamark vegna þess að eg tel veiðarnar verða hagkvæmari og markaðsmálin auðveldari viðureignar einnig þar sem eg tel svokallaðar ólimpískar veiðar vera tímaskekkju í dag. Hvað nýliðun varðar þá sé eg ekki hver verður munurinn á því að byrja veiðar í aflamarki menn þurfa í núverandi kerfi að verða sér úti um veiðileyfi ( aflaheimildir ) . Ég tek því algerlega undir orð Einars E Sigurðssonar og skora á alþingi að setja grásleppu í aflamark . bestu kveðjur, Ríkharð Lúðvíksson (undirritaður hefur stundað grásleppuveiðar frá 1985)

  • #4Halldór Rúnar Stefánsson
    Undirritaður lýsir sig andvígan þeirri breytingu sem sett er fram með lagabreytingu þessari og telur að með henni muni samþjöppun verða og því tengd byggðaáhrif. Um langa hríð hefur núverandi fyrirkomulag verið við líði og hefur, með þeim breytingum sem gerðar hafa verið, gagnast byggðum landsins og fjölda smábátasjómanna. Einnig má færa gild rök fyrir því að núverandi kerfi hafi viðhaldið grásleppustofninn með þeim sveigjanleika sem er í dagakerfinu. Það er fullvissa undirritaðs að ef breyting sú sem áformuð er gengur í eftir þá munu á skömmum tíma verða mikil samþjöppun í þessum veiðum. Rét… Lesa alla

    Undirritaður lýsir sig andvígan þeirri breytingu sem sett er fram með lagabreytingu þessari og telur að með henni muni samþjöppun verða og því tengd byggðaáhrif. Um langa hríð hefur núverandi fyrirkomulag verið við líði og hefur, með þeim breytingum sem gerðar hafa verið, gagnast byggðum landsins og fjölda smábátasjómanna. Einnig má færa gild rök fyrir því að núverandi kerfi hafi viðhaldið grásleppustofninn með þeim sveigjanleika sem er í dagakerfinu. Það er fullvissa undirritaðs að ef breyting sú sem áformuð er gengur í eftir þá munu á skömmum tíma verða mikil samþjöppun í þessum veiðum. Rétt eins og hefur orðið í öðrum kvótasettum tegundum. Að mati undirritaðs þá mun fyrirsjáanleg samþjöppun leiða til þess að nýliðar sem nú sjá sér möguleika í því að afla grásleppuleyfis og taka þátt í strandveiðum með það í huga að byggja upp lífvænlegan rekstur muni síður geta það ef kaupa þarf aflaheimildir í grásleppu. Einnig er það mat undirritaðs að frumvarpið, nái það fram að ganga, muni hafa áhrif á byggð í landinu enda eru um allt land bæði aðilar sem veiða og vinna. Aukin samþjöppun mun klárlega koma verst við smærri aðila í vinnslu og útgerð. Eins og málum er nú fyrir komið þá eru í raun tvö kerfi sem gera nýliðum kleift að koma sér upp útgerð, þ.e. strandveiðar og grásleppuveiðar. Undirritaður telur það skjóta skökku við að nú skuli eiga að taka annað þessara kerfa og kvótasetja og þannig minnka möguleika ungra manna til athafna. Undirritaður hefur verið á grásleppu til áratuga og séð grásleppustofninn sveiflast mikið til milli ára. Ekki verður í fljótu bragði séð hvernig á að vera hægt að nýta kvótasetningu til að stýra veiðum á svo sveiflugjörnum stofni. Í það minnsta telur undirritaður ljóst að kvótasetning grásleppu krefjist mikilla rannsókna og ekki ómögulegt að hún muni leiða til ofveiði í vondum árum. Virðingarfyllst Halldór Rúnar Stefánsson Þórshöfn

  • #5Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson
    Umsögn smábátafélagsins Hrollaugs á Hornafirði vegna Máls nr 173/2020.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðistjórn grásleppu o.fl.)). Það er með öllu óskiljanleg sú aðför sjávarútvegsráðherra að smábátútgerð, frelsi og tækifærum í landinu sem hann virðist vera í. Kvótasetning á grásleppu er ekkert annað en aðför að almannahagsmunum og tækifærum núverandi og komandi kynslóða við nýtingu eigin auðlinda sem sjávarútvegsauðlindin er. Aðför að nýliðun og auðlindaþjófnaður svo ekki sé meira sagt. Sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram þetta frumvarp um kvótasetningu… Lesa alla

    Umsögn smábátafélagsins Hrollaugs á Hornafirði vegna Máls nr 173/2020.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðistjórn grásleppu o.fl.)). Það er með öllu óskiljanleg sú aðför sjávarútvegsráðherra að smábátútgerð, frelsi og tækifærum í landinu sem hann virðist vera í. Kvótasetning á grásleppu er ekkert annað en aðför að almannahagsmunum og tækifærum núverandi og komandi kynslóða við nýtingu eigin auðlinda sem sjávarútvegsauðlindin er. Aðför að nýliðun og auðlindaþjófnaður svo ekki sé meira sagt. Sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram þetta frumvarp um kvótasetningu á grásleppu þrátt fyrir að smábátasjómenn hafi hafnað kvótasetningu árið 2019 í samkonar aðför og sjávarútvegsráðherra var í gegn almannahagsmunum þá. Það eru ekki almannahagsmunir að kvótasetja grásleppu heldur sérhagsmunir ætlaðir örfáum aðilum. Sagan segir okkur að samþjöppunin hefst frá firsta degi og tækifærum fyrir byggðir og einstaklinga á Íslandi mun fækka gríðarlega og aðgengi sjávarbyggða og íbúa þess að nýtingu auðlinda sinna hverfur skref fyrir skref. Örfáir aðilar munu njóta ávinningsins en heildin ekki. Á Grænlandi er veiðunum stýrt með svæðisbundnum pottum svo að eitt eða tvö svæði klári ekki upp heildarpottinn á vertíðinni til þess jú að koma í veg fyrir það sem gerðist hér á Íslandi á síðustu vertíð núna í vor þegar sjávarútvegsráðherra stöðvaði veiðar án þess að allir kæmust til veiða sem það vildu vegna mikillar veiði á sumum svæðum. Þannig er vel hægt að stýra veiðunum hér á Íslandi. Við þekkjum sögu kvótasetningar, hún rústar heilu byggðarlögunum á einu bretti. Einkavæðing á grásleppu er ekki til gagns fyrir land og þjóð, það sér hver einasti sem vill sjá hvað er hér á ferðinni. Þetta frumvarp er aðför að mannréttindum,frelsi og tækifærum núverandi og komandi kynslóða, byggðarlögum og nýtingarrétti þjóðarinnar á sínum eigin auðlindum og náðarhögg fyrir smærri útgerðarstaði. Það eru almannahagsmunir að kerfið verði mjög svipað og það er og eina breytingin sem þarf að gera á kerfinu er að svæðiskipta heildaraflamagni af grásleppu á milli landsvæða þannig að hvert svæði fái visst magn til sín og þar á að sjálfsögðu að miða við fjölda báta innan hvers svæðis á hverju ári. Með því er komið í veg fyrir að það sem gerðist í vor endurtaki sig þar sem eitt eða tvö svæði kláruðu allan heildarkvótan og allir hefðu sömu tækifæri. Tryggt yrði aðgengi þjóðarinnar að grásleppuveiðum framtíðarinnar, frelsi og tækifæri fyrir nýliðun og síðast en ekki síst mannréttindi þjóðarinnar að fá að nýta sér sjávarútvegsauðlind sína (Lífsbjörgina) til þess að skapa sér hér lífsviðurværi þar sem þau búa. Grásleppa er auðlind þjóðarinnar og hana verður að nýta almannahag til heilla eins og allar aðrar auðlindir þjóðarinnar. Saga kvótasetningar á grásleppu verður ekkert öðrvísi en saga kvótasetningar á öðrum tegundum. Samþjöppun hefst frá firsta degi, útgerðum og tækifærum fækkar stórkostlega og þar með atvinnu þegar auðlindin verður komin í hendur örfárra aðila á Íslandi á örfáum stöðum á landinu. Aðgengi og tækifæri við nýtingu a okkar eigin auðlindum eru sjálfsögð mannréttindi hér á landi . Þjóðin eru ekki kálfar á fóðrum hjá ríkinu, þjóðin á íslenska ríkið og þingmenn og ráðherrar eru í vinnu hjá þjóðini sem þjónar hennar en ekki örfárra sérhagsmunaaðilum í kringum landið sem svo oft virðist vera. Ellefta boðorðið gæti verið svona og stjórnvöld í hverju landi ættu að fara eftir því. "Þú skalt ekki ræna þjóð auðlindum sínum. Fyrir hönd smábátafélagsins Hrollaugs á Höfn Vigfús Ásbjörnsson Formaður

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-173/2020: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða o.fl. (veiðistjórn grásleppu o.fl.)). · Alviti