Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-9/2020 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum (stjórn og eftirlit).

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að leggja niður stjórn sjúkratryggingastofnunarinnar og bæta við eftirlitsheimildir.

Með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, er lagt til að stjórn sjúkratryggingastofnunar verði lögð niður. Í frumvarpinu eru einnig gerðar tillögur að auknum eftirlitsheimildum og breyttu verklagi við endurgreiðslu á kostnaði sjúkratryggðs við heilbrigðisþjónustu. Með því að leggja niður stjórn sjúkratryggingastofnunarinnar er ætlunin að skýra ábyrgð forstjóra stofnunarinnar svo hún verði ótvíræð og óskipt gagnvart ráðherra, bæði hvað varðar rekstur og þjónustu. Enda er skýr ábyrgð forstjóra með slíkum hætti í samræmi við 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, þar sem fram kemur að forstöðumenn ríkisstofnana beri ábyrgð á að sú stofnun, sem þeir stýra, starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf og að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög. Með því að leggja niður stjórn sjúkratryggingastofnunar er staða forstjóra sjúkratryggingastofnunar sem æðsta yfirmanns stofnunarinnar undirstrikuð með því að hann einn er skipaður af ráðherra og ber því ábyrgð gagnvart honum. Í frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á eftirlitsákvæði, þ.e. heimildir stofnunarinnar auknar í þá vegu að stofnuninni verði einnig heimilt að hafa eftirlit með þjónustuveitendum sem standa utan samninga og sjúkratryggðum er endurgreiddur kostnaður vegna heilbrigðisþjónustunnar á grundvelli gjaldskrár sem stofnunin setur, ásamt heimild til þess að endurgreiða kostnað sjúkratryggðs til þjónustuveitenda til hagsbóta fyrir sjúkratryggða enda sendi þjónustuveitendur reikninga rafrænt til stofnunarinnar. Ásamt því er lagt til að stofnunin geti kallað eftir ákveðnum hlutum sjúkraskrár sem nauðsynlegt er vegna eftirlits stofnunarinnar. Í gildandi lögum er gert ráð fyrir að sjúkratryggingastofnunin fari á þann stað sem sjúkraskrá er varðveitt en það verklag hefur tafið og komið í veg fyrir að stofnunin geti sinnt sínu eftirlitshlutverki með góðum hætti.

S-9/2020· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. jan. 2020 – 6. feb. 2020· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum (stjórn og eftirlit).

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að leggja niður stjórn sjúkratryggingastofnunarinnar og bæta við eftirlitsheimildir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-9/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 701)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. júní 2020)

Frumvarpsdrögin voru unnin áfram að loknu samráði í Samráðsgátt, tekið var tillit til umsagna að einhverju leyti. Útbýtingardagur á Alþingi var 26. mars 2020 og mælti heilbrigðisráðherra fyrir frumvarpinu 28. apríl 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-9/2020: Drög að frumvarpi til laga um breytingu laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum (stjórn og eftirlit). · Alviti