Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-2/2020 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Áformaðar eru breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis í kjölfar gildistöku laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Með frumvarpinu verða lagðar til viðeigandi breytingar á ýmsum lögum er heyra undir málefnasvið mennta- og menningarmálaráðuneytis svo að þau samræmist kröfum reglugerðar (ESB) 2016/679 eins og hún hefur verið leidd í íslensk lög með ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Ætlunin er að tryggja réttindi einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga þannig að hún samræmist persónuverndarlöggjöfinni og að hlutaðeigandi stjórnvöld sem vinna með persónuupplýsingar hafi fullnægjandi heimildir til vinnslunnar. Í nýrri persónuverndarlöggjöf eru gerðar auknar kröfur til ábyrgðar- og vinnsluaðila um skýrar heimildir til vinnslu persónuupplýsinga. Lagt verður mat á þörf nýrra heimilda til vinnslu persónuupplýsinga í löggjöf, þar sem þær mögulega skortir, en einnig má gera ráð fyrir að einhver gildandi ákvæði þurfi að vera skýrari svo vinnslan samræmist persónuverndarlöggjöfinni, sérstaklega lagaákvæði um vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga. Áformuð lagasetning mun styðja við grundvallarréttindi um persónurétt samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Samráð hefur nú þegar verið haft við Samband íslenskra sveitarfélaga og stofnanir sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti og fyrirhugað er áframhaldandi samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpi dómsmálaráðherra um innleiðingu reglugerðar (ESB) 2016/679 sem varð að lögum nr. 90/2018 var ekki mælt fyrir um efnislegar breytingar á sérlögum sem heyra undir málefnasvið annarra ráðuneyta. Af þeim sökum er nauðsynlegt að leggja fram sérstakt lagafrumvarp um viðeigandi breytingu á lögum sem heyra undir málefnasvið mennta- og menningarmálaráðuneytis.

S-2/2020· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. jan. 2020 – 20. jan. 2020· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Áformaðar eru breytingar á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis í kjölfar gildistöku laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-2/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 585)
Niðurstöður samráðs (15. júní 2020)

Samráði lokið. Engar umsagnir bárust um áformin. Frumvarpið er til vinnslu í ráðuneytinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-2/2020: Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytis vegna laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. · Alviti