Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-55/2019 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 en með þessu frumvarpi er ætlað að veita heimild til að stofna og reka neyslurými að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Umsagnarfrestur er til og með 4. mars næstkomandi.

Áformað er að leggja fram á vorþingi 2019 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að heimila stofnun og rekstur neyslurýma að uppfylltum tilteknum skilyrðum sem kveðið verður á um í reglugerð, en hún verður jafnframt kynnt í Samráðsgáttinni þegar að því kemur. Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem einstaklingar sem eru 18 ára og eldri geta neytt vímuefna í æð, undir eftirliti heilbrigðisstarfsmanna, og þar sem gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna. Við vinnslu frumvarpsdraganna voru meðal annars höfð til hliðsjónar ákvæði dönsku og norsku laganna sem heimila stofnun og rekstur neyslurýma, en talið er að um 90 neyslurými séu rekin í tíu löndum. Neyslurými byggjast á hugmyndafræði skaðaminnkunar, en í henni felt að draga úr heilsufarslegum, félagslegum og efnahagslegum afleiðingum notkunar vímuefna án þess þó að draga úr notkuninni sjálfri, enda gagnast skaðaminnkun ekki aðens fólki sem neytir efna heldur einnig fjölskyldum þeirra og samfélaginu öllu.

S-55/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. feb. 2019 – 4. mar. 2019· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými)

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 en með þessu frumvarpi er ætlað að veita heimild til að stofna og reka neyslurými að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Umsagnarfrestur er til og með 4. mars næstkomandi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-55/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 711)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (6. ágúst 2019)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í mars 2019 en náði ekki fram að ganga: https://www.althingi.is/altext/149/s/1135.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Jón Brynjar Birgisson

    Meðfylgjandi er umsögn Rauða krossins á Íslandi um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni. Fh. framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, Jón B Birgisson sviðsstjóri innanlandssviðs Rauða krossins á Íslandi s.8967288 / jon@redcross.is

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-55/2019: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými) · Alviti