Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-51/2019 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd og brottvísunartilskipunin).

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd og brottvísunartilskipunin).

Um er að ræða frumvarp sem kveður á um breytingar á lögum um útlendinga. Við framkvæmd á nýjum lögum um útlendinga nr. 80/2016 hafa komið í ljós ýmsir hnökrar sem þarf að leysa. Undanfarin misseri hefur umsóknum um alþjóðlega vernd fjölgað frá umsækjendum sem hafa dvalið í öðrum ríkjum Schengen-svæðisins áður en komið var til Íslands (e. secondary movement). Fjárframlög til málaflokksins hafa aukist umtalsvert undanfarin ár og þykir brýnt að auka skilvirkni í afgreiðslu mála svo stytta megi málsmeðferðartíma og draga úr allri bið innan kerfisins fyrst og fremst umsækjendum um alþjóðlega vernd til hagsbóta en jafnframt draga úr kostnaði ríkissjóðs. Í byrjun árs 2017 var þátttaka Íslands í Schengen samstarfinu tekin út. Að úttekt lokinni bárust ráðuneytinu drög að skýrslu vegna úttektar á þeim þáttum sem varða framkvæmd Íslands á tilskipun þingsins og ráðsins nr. 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Í skýrslunni er ítarlega farið yfir framkvæmd við endursendingar hér á landi auk þess sem helstu lög og reglugerðir er varða endursendingar eru raktar. Í frumvarpinu er kveðið á um nauðsynlegar lagabreytingar svo mæta megi athugasemdum úttektarnefndarinnar og fullnægja alþjóðlegum skuldbindingum Íslands í Schengen-samstarfinu.

S-51/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. feb. 2019 – 3. mar. 2019· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd og brottvísunartilskipunin).

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd og brottvísunartilskipunin).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-51/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 838)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. nóvember 2019)

Umsagnir bárust frá kærunefnd útlendingamála, Útlendingastofnun, lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinssyni & Partners, félagsmálaráðuneytinu, Rauða krossinum á Íslandi og ríkis-lögreglu¬stjóra. Þá sendi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna inn umsögn við vinnslu frumvarpsins vegna endurflutnings þess haustið 2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-51/2019: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd og brottvísunartilskipunin). · Alviti